Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jónas 2

1 (2:2) Og Jónas bað til Drottins Guðs síns í kviði fisksins2 (2:3) og sagði: Ég kallaði til Drottins í neyð minni, og hann svaraði mér. Frá skauti Heljar hrópaði ég, og þú heyrðir raust mína.3 (2:4) Þú varpaðir mér í djúpið, út í mitt hafið, svo að straumurinn umkringdi mig. Allir boðar þínir og bylgjur gengu yfir mig.4 (2:5) Ég hugsaði: Ég er burt rekinn frá augum þínum. Mun ég nokkurn tíma framar líta þitt heilaga musteri?5 (2:6) Vötnin luktu um mig og ætluðu að sálga mér, hyldýpið umkringdi mig, höfði mínu var faldað með marhálmi.6 (2:7) Ég steig niður að grundvöllum fjallanna, slagbrandar jarðarinnar voru lokaðir á eftir mér að eilífu. Þá færðir þú líf mitt upp úr gröfinni, Drottinn, Guð minn!7 (2:8) Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri.8 (2:9) Þeir sem dýrka fánýt falsgoð, þeir hafna hjálpræði sínu.9 (2:10) En ég vil færa þér fórnir með lofgjörðarsöng. Ég vil greiða það er ég hefi heitið. Hjálpin kemur frá Drottni.

10 (2:11) En Drottinn bauð fiskinum að spúa Jónasi upp á þurrt land.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile