Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 3

1 Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum. (3:2) Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.2 (3:3) Margir segja um mig: "Hann fær enga hjálp hjá Guði!" [Sela]3 (3:4) En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.

4 (3:5) Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. [Sela]5 (3:6) Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.6 (3:7) Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.7 (3:8) Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna.8 (3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela]

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile