Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 30

1 Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur. (30:2) Ég tigna þig, Drottinn, því að þú hefir bjargað mér og eigi látið óvini mína hlakka yfir mér.2 (30:3) Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín og þú læknaðir mig.3 (30:4) Drottinn, þú heimtir sál mína úr Helju, lést mig halda lífi, er aðrir gengu til grafar.4 (30:5) Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu, vegsamið hans heilaga nafn.5 (30:6) Andartak stendur reiði hans, en alla ævi náð hans. Að kveldi gistir oss grátur, en gleðisöngur að morgni.

6 (30:7) En ég uggði eigi að mér og hugsaði: "Aldrei skriðnar mér fótur."7 (30:8) Drottinn, af náð þinni hafðir þú gjört bjarg mitt stöðugt, en nú huldir þú auglit þitt og ég skelfdist.8 (30:9) Til þín, Drottinn, kallaði ég, og Drottin grátbændi ég:9 (30:10) "Hver ávinningur er í dauða mínum, í því að ég gangi til grafar? Getur duftið lofað þig, kunngjört trúfesti þína?10 (30:11) Heyr, Drottinn, og líkna mér, ó Drottinn, ver þú hjálpari minn!"11 (30:12) Þú breyttir grát mínum í gleðidans, leystir af mér hærusekkinn og gyrtir mig fögnuði,12 (30:13) að sál mín megi lofsyngja þér og eigi þagna. Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile