Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 36

1 Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins. (36:2) Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.2 (36:3) Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.3 (36:4) Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.4 (36:5) Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.

5 (36:6) Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.6 (36:7) Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.7 (36:8) Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.8 (36:9) Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.9 (36:10) Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.10 (36:11) Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.11 (36:12) Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt.12 (36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile