Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 46

1 Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð. (46:2) Guð er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í nauðum.2 (46:3) Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.3 (46:4) Látum vötnin gnýja og freyða, látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]4 (46:5) Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg, heilagan bústað Hins hæsta.5 (46:6) Guð býr í henni, eigi mun hún bifast, Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

6 (46:7) Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu, raust hans þrumaði, jörðin nötraði.7 (46:8) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]8 (46:9) Komið, skoðið dáðir Drottins, hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.9 (46:10) Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar, brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.10 (46:11) "Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð, hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu."11 (46:12) Drottinn hersveitanna er með oss, Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile