Lectionary Calendar
Thursday, May 23rd, 2024
the Week of Proper 2 / Ordinary 7
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 52

1 Til söngstjórans. Maskíl eftir Davíð, (52:2) þá er Dóeg Edómíti kom og sagði Sál frá og mælti til hans: Davíð er kominn í hús Ahímeleks. (52:3) Hví stærir þú þig af vonskunni, harðstjóri? Miskunn Guðs varir alla daga!2 (52:4) Tunga þín býr yfir skaðræði, eins og beittur rakhnífur, þú svikaforkur!3 (52:5) Þú elskar illt meir en gott, lygi fremur en sannsögli. [Sela]4 (52:6) Þú elskar hvert skaðræðisorð, þú fláráða tunga!5 (52:7) Því mun og Guð brjóta þig niður fyrir fullt og allt, hrífa þig burt og draga þig út úr tjaldi þínu og uppræta þig úr landi lifenda. [Sela]

6 (52:8) Hinir réttlátu munu sjá það og óttast, og þeir munu hlæja að honum:7 (52:9) "Þetta er maðurinn, sem ekki gjörði Guð að vernd sinni, heldur treysti á hin miklu auðæfi sín og þrjóskaðist í illsku sinni."8 (52:10) En ég er sem grænt olíutré í húsi Guðs, treysti á Guðs náð um aldur og ævi.9 (52:11) Ég vil vegsama þig að eilífu, því að þú hefir því til vegar komið, kunngjöra fyrir augum þinna trúuðu, að nafn þitt sé gott.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile