Lectionary Calendar
Thursday, May 23rd, 2024
the Week of Proper 2 / Ordinary 7
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 58

1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðs-miktam. (58:2) Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir? Dæmið þér mennina með sanngirni?2 (58:3) Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur yðar vega út ofbeldi.3 (58:4) Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.4 (58:5) Eitur þeirra er eins og höggormseitur, þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum5 (58:6) til þess að heyra ekki raust særingamannsins né hins slungna töframanns.

6 (58:7) Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra, mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!7 (58:8) Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt; miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,8 (58:9) eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur, ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.9 (58:10) Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum, hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi, feykir hann hinum illa burt.10 (58:11) Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina, hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.11 (58:12) Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt; það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile