Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 80

1 Til söngstjórans. Liljulag. Asafs-vitnisburður. Sálmur. (80:2) Hirðir Ísraels, hlýð á, þú sem leiddir Jósef eins og hjörð, þú sem ríkir uppi yfir kerúbunum, birst þú í geisladýrð.2 (80:3) Tak á mætti þínum frammi fyrir Efraím, Benjamín og Manasse og kom oss til hjálpar!3 (80:4) Guð, snú oss til þín aftur og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.4 (80:5) Drottinn, Guð hersveitanna, hversu lengi ætlar þú að vera reiður þrátt fyrir bænir lýðs þíns?5 (80:6) Þú hefir gefið þeim tárabrauð að eta og fært þeim gnægð tára að drekka.6 (80:7) Þú hefir gjört oss að þrætuefni nágranna vorra, og óvinir vorir gjöra gys að oss.7 (80:8) Guð hersveitanna leið oss aftur til þín og lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

8 (80:9) Þú kipptir upp vínvið úr Egyptalandi, stökktir burt þjóðum, en gróðursettir hann,9 (80:10) þú rýmdir til fyrir honum, hann festi rætur og fyllti landið.10 (80:11) Fjöllin huldust í skugga hans og sedrustré Guðs af greinum hans.11 (80:12) Hann breiddi út álmur sínar til hafsins og teinunga sína til Fljótsins.12 (80:13) Hví hefir þú brotið niður múrveggina um hann, svo að allir vegfarendur tína berin?13 (80:14) Skógargeltirnir naga hann, og öll dýr merkurinnar bíta hann.14 (80:15) Guð hersveitanna, æ, snú þú aftur, lít niður af himni og sjá og vitja vínviðar þessa15 (80:16) og varðveit það sem hægri hönd þín hefir plantað, og son þann, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa.16 (80:17) Hann er brenndur í eldi og upphöggvinn, fyrir ógnun auglitis þíns farast þeir.17 (80:18) Lát hönd þína hvíla yfir manninum við þína hægri hönd, yfir mannsins barni, er þú hefir styrkvan gjört þér til handa,18 (80:19) þá skulum vér eigi víkja frá þér. Viðhald lífi voru, þá skulum vér ákalla nafn þitt.19 (80:20) Drottinn, Guð hersveitanna, snú oss til þín aftur, lát ásjónu þína lýsa, að vér megum frelsast.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile