Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 84

1 Til söngstjórans. Á gittít. Kóraíta-sálmur. (84:2) Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna.2 (84:3) Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.3 (84:4) Jafnvel fuglinn hefir fundið hús, og svalan á sér hreiður, þar sem hún leggur unga sína: ölturu þín, Drottinn hersveitanna, konungur minn og Guð minn!4 (84:5) Sælir eru þeir, sem búa í húsi þínu, þeir munu ætíð lofa þig. [Sela]5 (84:6) Sælir eru þeir menn, sem finna styrk hjá þér, er þeir hugsa til helgigöngu.6 (84:7) Er þeir fara gegnum táradalinn, umbreyta þeir honum í vatnsríka vin, og haustregnið færir honum blessun.7 (84:8) Þeim eykst æ kraftur á göngunni og fá að líta Guð á Síon.

8 (84:9) Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína, hlýð til, þú Jakobs Guð. [Sela]9 (84:10) Guð, skjöldur vor, sjá og lít á auglit þíns smurða!10 (84:11) Því að einn dagur í forgörðum þínum er betri en þúsund aðrir, heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns en dvelja í tjöldum óguðlegra.11 (84:12) Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn. Hann synjar þeim engra gæða, er ganga í grandvarleik.12 (84:13) Drottinn hersveitanna, sæll er sá maður, sem treystir þér.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile