Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 91

1 Sæll er sá, er situr í skjóli Hins hæsta, sá er gistir í skugga Hins almáttka,2 sá er segir við Drottin: "Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á!"3 Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar,4 hann skýlir þér með fjöðrum sínum, undir vængjum hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja.5 Eigi þarft þú að óttast ógnir næturinnar, eða örina, sem flýgur um daga,6 drepsóttina, er reikar um í dimmunni, eða sýkina, er geisar um hádegið.7 Þótt þúsund falli þér við hlið og tíu þúsund þér til hægri handar, þá nær það ekki til þín.8 Þú horfir aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum er endurgoldið.

9 Þitt hæli er Drottinn, þú hefir gjört Hinn hæsta að athvarfi þínu.10 Engin ógæfa hendir þig, og engin plága nálgast tjald þitt.11 Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.12 Þeir munu bera þig á höndum sér, til þess að þú steytir ekki fót þinn við steini.13 Þú skalt stíga ofan á höggorma og nöðrur, troða fótum ljón og dreka.14 "Af því að hann leggur ást á mig, mun ég frelsa hann, ég bjarga honum, af því að hann þekkir nafn mitt.15 Ákalli hann mig, mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni, ég frelsa hann og gjöri hann vegsamlegan.16 Ég metta hann með fjöld lífdaga og læt hann sjá hjálpræði mitt."

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile