Lectionary Calendar
Thursday, May 23rd, 2024
the Week of Proper 2 / Ordinary 7
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jobsbók 16

1 Þá svaraði Job og sagði:2 Ég hefi heyrt nóg af slíku, hvimleiðir huggarar eruð þér allir saman.3 Er orðavindurinn nú á enda? eða hvað knýr þig til andsvara?4 Ég gæti líka talað eins og þér, ef þér væruð í mínum sporum, gæti spunnið saman ræður gegn yður og hrist yfir yður höfuðið,5 ég gæti styrkt yður með munni mínum, og meðaumkun vara minna mundi lina þjáning yðar.

6 Þótt ég tali, þá linar ekki kvöl mína, og gjöri ég það ekki, hvaða létti fæ ég þá?7 Miklu fremur hefir Guð nú örþreytt mig, - þú hefir eytt öllu ættliði mínu,8 hefir hremmt mig, og það er vitni í móti mér. Sjúkdómur minn rís í gegn mér, ákærir mig upp í opið geðið.9 Reiði hans slítur mig sundur og ofsækir mig, hann nístir tönnum í móti mér, andstæðingur minn hvessir á mig augun.10 Þeir glenna upp ginið í móti mér, löðrunga mig til háðungar, allir saman gjöra þeir samtök í móti mér.11 Guð gefur mig á vald ranglátra og varpar mér í hendur óguðlegra.12 Ég lifði áhyggjulaus, þá braut hann mig sundur, hann þreif í hnakkann á mér og molaði mig sundur og reisti mig upp sér að skotspæni.13 Skeyti hans fljúga kringum mig, vægðarlaust sker hann sundur nýru mín, hellir galli mínu á jörðu.14 Hann brýtur í mig skarð á skarð ofan og gjörir áhlaup á mig eins og hetja.15 Ég hefi saumað sekk um hörund mitt og stungið horni mínu ofan í moldina.16 Andlit mitt er þrútið af gráti, og svartamyrkur hvílir yfir hvörmum mínum,

17 þótt ekkert ranglæti sé í hendi minni og bæn mín sé hrein.18 Jörð, hyl þú eigi blóð mitt, og kvein mitt finni engan hvíldarstað!19 En sjá, á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.20 Vinir mínir gjöra gys að mér - til Guðs lítur auga mitt grátandi,21 að hann láti manninn ná rétti sínum gagnvart Guði og skeri úr milli mannsins og vinar hans.22 Því að senn eru þessi fáu ár á enda, og ég fer burt þá leiðina, sem ég aldrei sný aftur.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile