Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 1

1 Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,2 heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.3 Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum.

4 Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir.5 Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra.6 Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile