Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 15

1 Davíðssálmur Drottinn, hver fær að gista í tjaldi þínu, hver fær að búa á fjallinu þínu helga?2 Sá er fram gengur í flekkleysi og iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,3 sá er eigi talar róg með tungu sinni, eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;4 sem fyrirlítur þá er illa breyta, en heiðrar þá er óttast Drottin, sá er sver sér í mein og bregður eigi af,5 sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum - sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile