Lectionary Calendar
Saturday, May 18th, 2024
Eve of Pentacost
Attention!
We are taking food to Ukrainians still living near the front lines. You can help by getting your church involved.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 16

1 Davíðs-miktam. Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis.2 Ég segi við Drottin: "Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig."3 Á hinum heilögu sem í landinu eru og hinum dýrlegu - á þeim hefi ég alla mína velþóknun.4 Miklar eru þjáningar þeirra, er kjörið hafa sér annan guð. Ég vil eigi dreypa þeirra blóðugu dreypifórnum og eigi taka nöfn þeirra mér á varir.5 Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum.6 Mér féllu að erfðahlut indælir staðir, og arfleifð mín líkar mér vel.7 Ég lofa Drottin, er mér hefir ráð gefið, jafnvel um nætur er ég áminntur hið innra.

8 Ég hefi Drottin ætíð fyrir augum, þegar hann er mér til hægri handar, skriðnar mér ekki fótur.9 Fyrir því fagnar hjarta mitt, sál mín gleðst, og líkami minn hvílist í friði,10 því að þú ofurselur Helju eigi líf mitt, leyfir eigi að þinn trúaði sjái gröfina.11 Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile