Lectionary Calendar
Thursday, May 23rd, 2024
the Week of Proper 2 / Ordinary 7
Attention!
We are taking food to Ukrainians still living near the front lines. You can help by getting your church involved.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 60

1 Til söngstjórans. Lag: Vitnisburðarliljan. Miktam eftir Davíð, til fræðslu, (60:2) þá er hann barðist við Sýrlendinga frá Mesópotamíu og Sýrlendinga frá Sóba, og Jóab sneri við og vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, tólf þúsund manns. (60:3) Guð, þú hefir útskúfað oss og tvístrað oss, þú reiddist oss - snú þér aftur að oss.2 (60:4) Þú lést jörðina gnötra og rofna, gjör við sprungur hennar, því að hún reikar.3 (60:5) Þú lést lýð þinn kenna á hörðu, lést oss drekka vímuvín.4 (60:6) Þú hefir gefið þeim, er óttast þig, hermerki, að þeir mættu flýja undan bogunum. [Sela]5 (60:7) Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr oss, til þess að ástvinir þínir megi frelsast.

6 (60:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.7 (60:9) Ég á Gíleað og ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.8 (60:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."9 (60:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?10 (60:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.11 (60:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.12 (60:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile